Styrktaraðilar
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Skemmtisíða Mosaldar 2010

Á þessari síðu mun verða líf og fjör....

Þetta er DJAMM- síðan,,,, og eins og nafnið segir til um verða allar upplýsingar um DJAMMIÐ á milli leikja sett hér inn og það er ljóst að blakarar munu mála Mosfellsbæ RAUÐAN eftir að leikjum líkur á kvöldin og eins koma allar upplýsingar um lokahófið hér inn - þegar nær dregur..en það er allt að verða klárt...

En ljóst er að það verður MEIRIHÁTTAR...STUÐ...STUÐ ...STUÐ...
OG ENN MEIRA STUUUUUÐÐÐ....á MOSÖLDINNI....

Fimmtudagur 13. mai 2010

 

 

Hlégarður býður blökurum upp á gamla góða trúbators stemninguna að hætti Hljóms. Flottustu og skemmtilegustu trúbatorarnir  "okkar"  halda uppi frábærri skemmtun þetta kvöldið með gömlum sem nýjum slögurum – dansað og tjúttað og sungið....

 

 

Föstudagur 14. mai 2010

 

Hraunhús, nýi skemmtistaður Mosfellsbæjar sem er að slá í gegn býður blakara sérstaklega velkomna og ætlar  "Siggi eini sanni Hlö"  að mæta og þeyta fyrir okkur skífur (eða ýta á takka á fartölvunni eins og það er víst í dag) á þessum eldheita stað.

Hristum okkur saman og spænum upp dansgólfið eins og alvöru blakarar gera best.

 

Mosaldargestir athugið:  Einnig er hægt að kíkja á Cafe Kidda Rót, Áslák, Draumakaffi og Eldhúsið og fá sér einn kaldann.

Nánari upplýsingar verða þegar nær dregur.

 

 

Laugardagur 15. mai 2010

 

LOKAHÓF...EINS OG ÞAU GERAST BEST....

 

Mikið verður lagt upp úr því að við skemmtum okkur sem allra best á hófinu.

 

Lokahófið verður haldið í íþróttamiðstöðinni að Varmá og opnar húsið kl 19:00 og hefst borðhald kl 20:00

 

Panta þarf fyrir liðið í heild og senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.   þar sem fram kemur fyrir hvaða lið er pantað og fjölda við borðið.

Miðar í forsölu kosta 5.700 til 15. apríl eða þar til skráningu á mótið lýkur og eftir það kostar miðinn 6.300 kr.

Lokahófsmiðar greiðast á reikning: 315-26-9874, kennitala: 490401-3420 og sendið kvittun á : Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Veislustjóri, söngur, gleði og brjálað ball á eftir þessum dýrindis veitingum... 

Matseðill lokahófsins:

Síðast uppfært (Föstudagur, 02. apríl 2010 12:20)

 
Styrktaraðilar
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði