Mótsbolir í pöntun
Þeir sem pöntuðu og greiddu mótsbol á Mosöldinni þurfa ekki að örvænta þótt bolurinn hafi ekki borist. Sendingin til landsins hefur eitthvað tafist en von er á henni á næstu dögum.
Jói í heildsölunni Namo sér um þetta mál og best er að snúa sér beint til hans ef ykkur fer að lengja eftir bolunum: s. 566 7310 og 896 0131











